Go Back To home

Lærum Og Leikum Með Hljóðin - Allt Efnið Report

By on
334 2
1 2 3 4 5
3 1
Lærum Og Leikum Með Hljóðin - Allt Efnið

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla. smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. ný rannsókn sýnir marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og læsi þegar skipulega var unnið eftir aðferðafræði lærum og leikum með hljóðin. niðurstöður sýndu mun betri framfarir hjá nemendunum þegar þeir voru bornir saman við jafnaldra sína í þremur öðrum skólum sem fóru í gegnum aðrar hefðbundnar lestrarkennsluaðferðir. (gudmundsdottir. 2014) smáforritið tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni stöðvar 2. efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni bryndísar guðmundsdóttur talmeinafræðings. lærum og leikum með hljóðin inniheldur: - talsetning/söngur felix bergsson og védís hervör Árnadóttir - Íslenskar teikningar búa kristjánssonar og höllu sólveigar Þorgeirsdóttur - 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið - sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega - röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni - hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina - hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð - Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði - hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum - Ð, ng og ,,mjúka” g, eru æfð aftast og í miðju orða - r býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð r- hljóðsins) - Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem myndir koma á víxl til frekari æfinga - hrós veitt reglulega í forritinu - upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta - skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang - stigagjöf inni í forritinu - Árangur sýndur í % - skráning athugasemda inni í forritinu - upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti - hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print) - vistun með dropbox við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna: mennta- og menningarmálaráðuneytið og barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir ipad (2013). eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: novator, norðurál, hagar, kpmg Íslandi og hs orka (2015). frekari upplýsingar: http.www.youtube/laerumogleikum www. laerumogleikum.is www. kidssoundlab.com

TagsEducation Educational Family Games

Warning: the site'itunes.apple' maybe down for some reasons,you can select other links
This game's description and thumbnail are both copyright by it's owner site or author.

The Same Title Games

Similar Games

no slimilar games

Comments