Go Back To home

Froskaleikur 3 Report

By on
332 2
1 2 3 4 5
3 1
Froskaleikur 3

SÍÐustu hljÓÐin í máltökunni eru æfð í froskaleik 3 sem er þriðji í röðinni um hoppa frosk. hér hjálpa börnin hoppa að finna lykillinn að galdrakastalanum. Þetta er síðasta þrautin sem þarf að leysa til að komast inn í kastalann. Þar þarf að útbúa galdraseyðið sem hoppi drekkur svo hann fái málið aftur. Í skemmtilegum æfingum er farið í gegnum síðustu hljóðin sem börn tileinka sér í máltökunni í íslensku: /ng, ð, þ, s, mjúka g, hn/. bókstafir málhljóðanna sem ekki eru sögð fremst í orðum eru merktir sérstaklega þar sem þeir koma fyrir í orðum. sólin í hverju borði gefur greinargóðar upplýsingar um hvað á að gera hverju sinni. um alla leikina 1 2 3 froskaleikirnir segja frá froskinum hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í þremur mismunandi sjálfstæðum hljóðgreiningarleikjum fyrir barnafjölskyldur þarf hoppi að leysa ýmsar þrautir til að komast í kastalann sem geymir lausnina að því að hann nái málinu aftur. börnin æfa íslensku málhljóðin í erfiðleikaröð þeirra, frá fyrsta í gegnum þriðja froskaleikinn, með æfingum í hljóðavitund, hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. allt eru þetta mjög mikilvægir þættir í hljóðkerfisvitund og nefnuhraða til undirbúnings læsi og lesfimi. höfundur smáforritsins er talmeinafræðingur með margra ára reynslu í starfi á Íslandi. efnistök smáforritsins byggja á rannsóknum um hvaða grunnfærni einstaklingur þarf að hafa til að læra að lesa; m.a. ákveðnum þáttum í hljóðkerfisvitund og úrvinnslu, vitund um letur, gott talmál og að kalla fram hljóðrænar upplýsingar í orðaminni þegar þekkja á skrifuð orð. allir þessir þættir stuðla að lestrarnákvæmni og lestraröryggi sem er forsenda sjálfvirkni í lestri. Þá er góður málskilningur og orðaforði undirstaða fyrir góðan lesskilning og í smáforritinu eru hundruð orða kennd með íslenskum teikningum höllu sólveigar Þorgeirsdóttur og búa kristjánssonar auk þess sem öll orð eru talsett af védísi hervöru Árnadóttur og felix bergssyni. forritið er fyrir börn frá 4 – 5 ára aldri og hentar langt fram á grunnskólaaldur, eftir eðli mála. forritið gefur möguleika á að velja léttari æfingar fyrir byrjendur. engar auglýsingar. foreldravörn. mikilvægar ábendingar frá hoppa froski: smellið á blikkandi sjónvarp efst uppi til hægri til að heyra söguna í upphafi. Í fyrstu umferð þarf nemandi að klára öll borðin í hverju hljóði og fá 4 stjörnur. annars hoppar hoppi ekki áfram. svo æfir barnið hljóðin í röð. Þannig opnast á öll hljóðin síðar og nemandi getur valið hljóð af handahófi. markmiðið er að þjálfa ákveðin hljóð fyrst og gera þetta með stigvaxandi þyngd. málhljóðin í froskaleiknum eru æfð í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á: 1) hljóðavitund. kynning á bókstaf, hljóði og fingrastafrófi. fyrirmynd fyrir hljóðið kynnt með vísan í heyrn- sjónrænt minni með lítilli sögu fyrir hvert hljóð 2) hljóðatenging og umskráning: lítill/stór stafur. bókstafur tengdur við hljóðið sem sýnt er með vísan í táknmynd þess. umskráning æfð sem mikilvæg er til undirbúnings lestrarferlinu. stjörnugjöf og stika sem sýnir hversu langt þú ert komin/n í leiknum 3) hljóðgreining. hljóð tengt við mynd þar sem tengja þarf rétt hljóð við rétt orð. stjörnugjöf og stika sem sýnir þér hversu langt þú ert komin/n í leiknum 4) hljóðgreining og skrifað orð, nefnuhraði > að þekkja skrifað orð og kalla fram úr orðasafni hljóðrænar upplýsingar. barnið smellir á skrifuðu orðin til að heyra heiti þeirra, hlustar vel á orðin og velur rétta hljóðamynd fyrir hljóðið. smám saman tileinkar barnið sér ákveðna sjálfvirkni í að lesa ritháttarmyndina fyrir orðið og tengir við hljóðkerfisvitundina við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna: eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: novator, norðurál, hagar, kpmg Íslandi og hs orka. styrkir vegna þróunar froskaleikja hoppa: Þróunarsjóður námsgagna, barnavinafélagið sumargjöf og barnamenningarsjóður

TagsEducation Educational Family Games

Warning: the site'itunes.apple' maybe down for some reasons,you can select other links
This game's description and thumbnail are both copyright by it's owner site or author.

The Same Title Games

no other same games

Similar Games

play Cookie Crush 3

freeonlinegamesplay Cookie Crush 3 on freeonlinegames - Welcome to cookie crush 3 - the newest iteration of the ..

play Rescue Team 3

bigfishgamesplay Rescue Team 3 on bigfishgames - Save the day as the leader of the rescue team, a group of ..

play Island Tribe 3

bigfishgamesplay Island Tribe 3 on bigfishgames - Find the magic runes, rescue the bride and dive into ..

play Christmas Match 3

htmlgamesplay Christmas Match 3 on htmlgames - Christmas match 3 html5 game: match 3 game for christmas. ..

play Emoji Match 3

htmlgamesplay Emoji Match 3 on htmlgames - Emoji match 3 html5 game: match 3 game with emoji's. swap 2 ..

play 3 Door Escape 3

f512play 3 Door Escape 3 on f512 - Games2escape - g2e 3 door escape 3 is a point and click ..

play Match-3-Christmas-Pack

hiddenogamesplay Match-3-Christmas-Pack on hiddenogames - Match 3 christmas pack match 3 christmas pack is a classic ..

play Hiddenverse: Witch'S Tales 3

bigfishgamesplay Hiddenverse: Witch'S Tales 3 on bigfishgames - Prepare for the final chapter of alice’s exciting ..

play Travel Mosaics 3: Tokyo Animated

bigfishgamesplay Travel Mosaics 3: Tokyo Animated on bigfishgames - The latest travel mosaics is here! experience this ..

play Solitaire Beach Season 3

bigfishgamesplay Solitaire Beach Season 3 on bigfishgames - The summer season is approaching! time to put aside your ..

Comments